„Það verður engin breyting hjá mér en ég er afar stolt af honum,“ segir Ólöf Nordal, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, en eiginmaður hennar, Tómas Már Sigurðsson, hefur verið ráðinn yfirmaður Alcoa í Evrópu. „Ég bý hér áfram með börnin sem eru í skóla hér.“
Ólöf segir að vegna starfa sinna sem forstjóri Fjarðaáls á Reyðarfirði hafi Tómas verið mikið á faraldsfæti síðustu árin og breytingin því ekki mikil fyrir þau.