Rólegt var hjá slökkviliðinu á Akureyri um jólin en á annan dag jóla var farið í eitt sjúkraflug, fjóra neyðarflutninga og tvo almenna flutninga.
Á aðfangadag var farið í einn neyðarflutning og aðstoðað síðan við að bera einn einstakling á milli hæða eftir jólaboð í heimahúsi.
Á jóladag var aðstoðað við vatnsleka í heimahúsi, að því er segir á vef slökkviliðsins.