Það verður opið í dag frá 14-21 í Bláfjöllum. Á vef skíðasvæðisins kemur fram að þar sé ágætisveður og fjögurra stiga frost.
Ekki er búið að opna allar lyftur á svæðinu en mikill snjór er í Bláfjöllum og styttist í að allt svæðið verði opnað.
Rútuferðir verða samkvæmt áætlun.