Snjó mokað um áramótin

Vinna við snjóhreinsun hefst í Reykjavík klukkan fjögur að morgni gamlársdags og verður unnið fram eftir degi. Þá eru einnig vaktir á nýársdag og aukamannskapur verður ræstur út eftir þörfum. 

Að sögn framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkur eru um 70 starfsmenn á vegum borgarinnar og verktaka á hennar vegum í vinnu við snjóhreinsun og hafa þeir 50 tæki til verksins, 39 gröfur og 11 vörubíla.

Í dag færðist athyglin meira að efri byggðum þar sem færð var tekin að þyngjast eins og í Grafarholti þar sem snjó hefur skafið. Í dag huguðu starfsmenn Reykjavíkurborgar einnig að niðurföllum en spáð hefur verið hlýindum með kvöldinu og því þótti rétt að hafa varann á. Íbúar eru hvattir til að huga að niðurföllum sem og að slá niður grýlukerti þar sem hætta er á að þau geti fallið á fólk.  
 
Starfsmenn í sorphirðu verða við störf á gamlársdag til að vinna upp þá töf sem hefur orðið á sorphirðu vegna þungrar færðar. Þrátt fyrir þunga færð er sorphirða aðeins degi á eftir upphaflegri áætlun en á sorphirðudagatali á vef Reykjavíkurborgar má sjá hvenær sorp verður næst hirt. Eru íbúar hvattir til að hreinsa frá sorptunnum þá daga sem sorphirðan er á ferðinni. Í dag og á gamlársdag er unnið í Fossvogi og Breiðholti.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert