Jón íhugar forsetaframboð

Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur.
Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur. mbl.is/Ómar

Jón Gn­arr, borg­ar­stjóri Reykja­vík­ur, seg­ist vera að skoða það hvort hann eigi að bjóða sig fram til for­seta í ár. Þetta kom fram í út­varpsþætt­in­um Virk­ir morgn­ar á Rás 2 í morg­un, þar sem Jón var gest­ur.

„Ég er nú bara svona að skoða þetta. Þetta er gríðarlega spenn­andi; og ég hef alltaf séð lífið sem leik­völl til þess að prófa hluti,“ sagði Jón þegar hann var spurður hvort hann hefði áhuga á for­seta­embætt­inu.

„Það var nú hringt í mig í gær, frá fjöl­miðlaheim­um. Þá frétti ég fyrst af því að fólk hefði ein­hvern áhuga á að ég yrði for­set­inn þeirra. Þetta hafði ekki hvarflað að mér. Ég hafði ekk­ert velt því fyr­ir mér. Nú þarf ég að skoða þetta,“ sagði Jón og bætti við: „Maður sér til.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert