Karlmaður á þrítugsaldri var dreginn upp úr snjóskafli í Háaleitishverfinu um kvöldmatarleytið í gær og var umsvifalaust handtekinn.
Að sögn lögreglu hafði maðurinn skömmu áður ekið fólksbíl og hefði í raun verið á flótta undan lögreglunni og gripið til þess ráðs að fela sig í snjóskafli.
Maðurinn, sem var í annarlegu ástandi, hafði þegar verið sviptur ökuleyfi.