Albert Jensen mun hefja mótmælasvelti á morgun til að mótmæla breytingum á heimaþjónustu sinni sem gengu í gildi nú um áramótin. Albert er áttræður og öryrki eftir vinnuslys sem hann varð fyrir fyrir 21 ári. Áður var það Vinun sem sá um þjónustuna en nú er hún í höndum Reykjavíkurborgar.