Mikill samdráttur varð í umferð um vegakerfi landsins á síðasta ári og dróst umferð á Hringveginum saman um 5,3% frá árinu 2010. Segir Vegagerðin að desemberumferðin hafi ekki verið minni frá árinu 2005.
Til samanburðar dróst umferðin saman um 2,3% árið 2010 og um 1,7% árið 2008 en jókst um 6,8% árið 2007. Fram að því hafði aksturinn nánast aukist á hverju ári síðan 1975 að því er kemur fram á vef Vegagerðarinnar.
Umferð í desember dróst saman um 9,5% frá desember 2010.