2.266 skip á aðalskipaskrá

Úr safni.
Úr safni. mbl.is/Helgi Bjarnason

Skipum á íslenskri aðalskipaskrá hefur fjölgað um 16 frá árinu 2010. Á árinu 2011 voru frumskráð og endurskráð skip 41 en afskráð skip voru 25. Á aðalskipaskrá 1. janúar 2012 voru samtals 2.266 skip

Fram kemur á vef Fiskistofu að á árinu 2011 hafi orðið mestar breytingar á skráningu fiskiskipa undir 15 brúttótonnum, en þeim hafi fjölgað úr 1.224 í 1.256. Í þeim flokki hafi verið 15 skip frumskráð, 12 skip endurskráð  og 19 skip skráð sem fiskiskip en voru áður skemmtiskip eða skráð til annarrar notkunar.

Nokkur fiskiskip voru afskráð eða notkun þeirra breytt, þannig að fjölgun skráðra fiskiskipa undir 15 brúttótonnum var 32 skip.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert