„Við ætlum ekki að skipta um nafn og ég óska Nýrri framtíð bjartrar framtíðar,“ segir Guðmundur Steingrímsson, annar forsvarsmanna stjórnmálaflokksins Bjartrar framtíðar en pólitísku samtökin Ný framtíð hafa óskað eftir því að flokkurinn breyti um nafn.
„Þetta er ekki sama nafnið og það er ýmislegt sem heitir framtíð í samfélaginu þannig að það er bara skemmtilegt að það sé til Ný framtíð líka,“ segir Guðmundur.