Von á yfirlýsingu frá Jóni

Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur.
Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur. Reuters

Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, segir á facebooksíðu sinni að hann muni senda frá sér yfirlýsingu vegna forsetakosninga í næstu viku.

Jón var gestur í útvarpsþættinum Virkir morgnar á Rás 2 í síðustu viku. Þar sagðist hann vera að skoða það hvort hann ætti að bjóða sig fram til forseta í ár.

„Ég er nú bara svona að skoða þetta. Þetta er gríðarlega spennandi; og ég hef alltaf séð lífið sem leikvöll til þess að prófa hluti,“ sagði Jón þegar hann var spurður hvort hann hefði áhuga á forsetaembættinu.

Jón íhugar forsetaframboð

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert