Öllum ferðum dagsins aflýst

Vegna ófærðar og slæms veðurútlits í dag hefur öllum áætlunarferðum sérleyfisbifreiða Sterna verið frestað til morguns. Áætlað er að farið verði frá Hellissandi til Reykjavíkur og Akureyrar kl. 07:45 og frá Stykkishólmi kl. 08:15.

Farið verður frá Reykjavík til Akureyrar, Búðardals og Hólmavíkur á morgun kl. 08:30. Einnig hefur ferðinni frá Akureyri til Reykjavíkur verið frestað til morguns og áætlað að hún verði kl. 08:30.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert