Afþakka endurnýjuð loforð

Jóhanna Sigurðardóttir.
Jóhanna Sigurðardóttir. mbl.is/Golli

Samtök atvinnulífsins telja tilgangslaust að óska eftir endurnýjuðum loforðum ríkisstjórnarinnar vegna mála sem ekki hafa gengið fram í samræmi við yfirlýsingu hennar. Nú verða það aðeins verkin sem tala, segir í bréfi sem samtökin hafa sent forsætisráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur.

Samtök atvinnulífsins fjalla nú um stöðu mála vegna opnunarákvæða kjarasamninga frá 5. maí 2011 þar sem taka þarf ákvörðun um hvort samningarnir haldi gildi sínu í síðasta lagi 20. janúar nk. Ef samningunum verður sagt upp eru þeir lausir frá 1. febrúar.

Meðal umfjöllunarefna er hvernig yfirlýsing ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamningana hefur gengið eftir.

Í bréfi Samtaka atvinnulífsins sem sent var í dag til Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra er fjallað ítarlega um framgang einstakra mála eins og þau koma fram í yfirlýsingunni og forsendur samninganna.

Af 36 atriðum hafa 24 ekki verið efnd

„Fjölmörg áform ríkisstjórnarinnar hafa ekki náð fram að ganga. Af 36 atriðum sem talin eru upp hafa 24 ekki verið efnd, eða í tveimur þriðju tilvika, í 7 atriðum hafa mál gengið eftir eins og um var talað en í 5 atriðum eru mál enn í gangi og gæti hugsanlega lokið farsællega. Afdrifaríkast er að fjárfestingar í atvinnulífi og opinberar framkvæmdir hafa ekki aukist eins og lagt var upp með.

Samstarf ríkisstjórnar og aðila vinnumarkaðarins er afar mikilvægt til þess að stuðla að farsælum framgangi efnahags- og atvinnumála. Því miður hefur ríkisstjórnin ekki tekið þetta samstarf alvarlega svo sem bæði má merkja af vanefndum á Stöðugleikasáttmálanum frá júní 2009 og yfirlýsingu vegna samninganna 5. maí sl.,“ segir í frétt frá Samtökum atvinnulífsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert