Sameiginlegur fundur samninganefndar Bárunnar, stéttarfélags, og Verslunarmannafélags Suðurlands harmar vanefndir ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamningana sem undirritaðir voru í maí í fyrra. Þess er krafist að farið verði í þær atvinnuskapandi aðgerðir sem lofað var.
Í tilkynningu sem send var eftir fundinn, sem haldinn var í kvöld, segir að á sama tíma og aðilar vinnumarkaðarins hafi lagt á sig mikið erfiði og fórnir til að ná markmiðum samningsins þá hafi ríkisstjórnin svikið mikilvæg loforð í þríhliða samkomulagi milli aðila.
„Flest loforð um bætt kjör til handa þeim sem minnst bera úr býtum hafa verið svikin og ekkert bólar á fjárfestingum eða aðgerðum sem væntingar voru uppi um við undirskrift samningsins. Atvinnuleysi er viðvarandi og álögur á almenning aukast jafnt og þétt. Ekkert bólar á marglofuðum störfum og ekki er enn farið að vinna að jöfnuði lífeyrisréttinda heldur þvert á móti er hert á snörunni um háls almennu lífeyrissjóðanna.“