Hirti sagt upp á RÚV

Hjörtur Júlíus Hjartarson.
Hjörtur Júlíus Hjartarson. mbl.is/RAX

Hirti Júlíusi Hjartarsyni, vaktstjóra íþróttadeildar Ríkisútvarpsins, hefur verið sagt upp störfum. Kristín Harpa Hálfdánardóttir, íþróttastjóri RÚV, staðfesti þetta í samtali við mbl.is. Hún segir að Hirti hafi verið sagt upp sl. mánudag.

Aðspurð segir Kristín að það sé innanhússmál hvers vegna Hirti var sagt upp störfum. Hún vill að öðru leyti ekki tjá sig frekar um málið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert