Reykjavíkurborg hefur hætt við að rukka um 100 þroskahamlaða og fatlaða einstaklinga, sem starfa á vernduðum vinnustöðum í Reykjavík, um 610 krónur fyrir hádegismat, líkt og til stóð.
Samkvæmt upplýsingum mbl.is var hætt við þessa gjaldskrárbreytingu í morgun. Ný gjaldskrá var samþykkt í borgarstjórn 15. nóvember síðastliðinn og tók hún til einstaklinga í dagþjónustunni á Gylfaflöt, vinnustofunni Iðjubergi, hæfingarstöðinni Bjarkarási og dagþjónustunni á Lækjarási.