Hreinsað frá niðurföllum

mbl.is/Sigurgeir Sigurðsson

Starfsmenn Reykjavíkurborgar eru við snjóhreinsun í öllum hverfum borgarinnar og í dag er sérstök áhersla lögð á að hreinsa frá niðurföllum því gert er ráð fyrir asahláku næstu daga.

Íbúar eru hvattir til að hafa varann á vegna veðrabrigða og vakin er athygli á að þeir geta sótt salt á hverfastöðvarnar.

Svipaður fjöldi starfsmanna er við störf í dag og í gær. 73 starfsmenn Reykjavíkurborgar og verktaka á hennar vegum vinna við snjóhreinsun og hálkuvarnir og hafa þeir 49 tæki til afnota. Í samræmi við viðbragðsáætlanir fóru fyrstu vaktir á göturnar klukkan fjögur í nótt og tóku umferð í saltdreifingu á stofnbrautir og helstu umferðargötur.  

Í dag eru vélheflar, stórvirkar vélskóflur, traktorar og fleiri tæki við snjóhreinsun í öllum hverfum borgarinnar. Unnið er í húsagötum við að ná niður klakahryggjum, breikka akstursleiðir og einnig er áfram unnið við að fjarlægja snjóhauga sem hafa safnast upp. Sjö heflar eru í notkun á vegum Reykjavíkurborgar.

Unnið er í húsagötum í þessum hverfum: Esjumelum, Úlfarsárdal, Grafarholti, Foldahverfi, Ártúnsholti, Árbæ, Norðlingaholti, Breiðholti, Smáíbúðahverfi, Bústaðahverfi, Hlíðum, Melum, Högum, Skjólum, Granda og Vesturbæ.

Unnið er við að fjarlægja snjóhauga á þessum stöðum: Snorrabraut, Barónsstíg, Gunnarsbraut, Austurbrún, Skeiðarvogi, Grensásvegi og Langholtsvegi.

Íbúar eru hvattir til að vera eingöngu á ferð á bílum með góðum vetrardekkjum og eins huga að því að bílar séu ekki fyrir snjóruðningstækjum sem víða komast illa að til hreinsunarstarfa. Illa staðsettir bílar hafa tafið hreinsunarstarf og dæmi eru um í nokkrum húsagötum að stjórnendur snjóruðningstækja hafi þurft frá að hverfa, segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Reglubundin vinna við snjóhreinsun og söndun göngustíga er í gangi. Aðkomuleiðir að biðstöðvum strætó og helstu gönguleiðir hafa forgang. Níu traktorar eru á göngustígum um alla borg.  

Reykjavíkurborg er í viðbragðstöðu með að dreifa sandi á hálku ef aðstæður verða eins og um síðustu helgi. Mögulegt er að senda trukkana ellefu sem dreifa salti á allar meginleiðir út með sand.

Einnig stendur íbúum til boða að nálgast sand og salt á hverfastöðvum Reykjavíkurborgar til að bera á einkalóðir og innkeyrslur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert