Mugison Vestfirðingur ársins

Mugison.
Mugison.

Vestfirðingur ársins 2011 samkvæmt vali lesenda fréttavefjarins bb.is er Örn Elías Guðmundsson, betur þekktur sem tónlistarmaðurinn Mugison.

Örn Elías hefur verið viðloðandi tónlist um margra ára skeið og gefið út nokkrar hljómplötur. Stjarna hans hefur aldrei risið eins hátt og undir lok síðasta árs er hann gaf út hljómdiskinn Haglél sem selst hefur í tugþúsundum eintaka.

Til að þakka landsmönnum fyrir stuðninginn hélt Örn Elías fjölmarga tónleika víðs vegar um land auk þrennra tónleika í Hörpu þar sem þúsundir landsmanna hlustuðu á hann án endurgjalds. Þess má geta að Örn Elías var einnig kjörinn Vestfirðingur ársins 2004 og er því sá fyrsti til að hampa nafnbótinni í tvígang.

Örn Elías fékk ríflega 36% greiddra atkvæða en rúmlega 400 atkvæði bárust, segir í frétt á vef BB. Í öðru sæti í vali á Vestfirðingi ársins var Guðni Albert Einarsson, framkvæmdastjóri á Suðureyri. Hann fékk 32% greiddra atkvæða og samanlagt fengu þeir Guðni og Örn Elías 68% greiddra atkvæða.

Í þriðja sæti í vali á Vestfirðingi ársins var Jón Guðbjartsson, framkvæmdastjóri rækjuverksmiðjunnar Kampa á Ísafirði. Hann fékk 9% greiddra atkvæða. Alls fengu 55 einstaklingar atkvæði í kosningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert