Gunnar Tryggvason verkfræðingur hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Oddnýjar Harðardóttur fjármálaráðherra.
Gunnar er með B.Sc. gráðu í rafmagnsverkfræði frá Háskóla Íslands, Dipl.Ing gráðu í raforkuverkfræði frá Háskólanum í Karlsruhe í Þýskalandi og Diplomagráðu í viðskipta- og rekstrarfræði frá Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef fjármálaráðuneytisins.
Gunnar hefur undanfarin tvö ár starfað sem sérfræðingur hjá KPMG á sviði orkuiðnaðar.