Erlendir ferðamenn aldrei fleiri

Erlendir ferðamenn í Reykjavík.
Erlendir ferðamenn í Reykjavík. mbl.is/Golli

Heildarfjöldi erlendra ferðamanna árið 2011 var rúmlega 565 þúsund og er um að ræða 15,8% aukningu frá 2010 en þá voru erlendir ferðamenn tæplega 489 þúsund talsins. Hafa ferðamenn aldrei verið fleiri á einu ári. 

Ferðamálastofa tekur saman tölur um fjölda erlendra ferðamanna og í þeim kemur fram að langflestir erlendu ferðamannanna eða 95,6% fóru um Keflavíkurflugvöll, 2,2% komu með Norrænu um Seyðisfjörð og 2,2% fóru um Reykjavíkur-, Akureyrar- eða Egilsstaðaflugvöll. Í fréttatilkynningu segir að vert sé að taka fram að tölur fyrir aðra staði en Keflavíkurflugvöll byggja ekki á eiginlegum talningum heldur mati út frá sölutölum og farþegatölu.

Þar fyrir utan eru farþegar með skemmtiferðaskipum en tæplega 63 þúsund farþegar komu til Reykjavíkur með 67 skipum árið 2011, 10,6% færri en á árinu 2010 þegar þeir voru um 70 þúsund talsins. Um 95% skemmtiferðaskipa til landsins hafa viðkomu í Reykjavík. 

Fjöldamet voru slegin í öllum mánuðum ársins í Flugstöð Leifs Eiríkssonar nema mars en þá kom álíka fjöldi og á árinu 2010. Framboð á flugsætum hefur aldrei verið meira en á árinu 2011 og sú gríðarlega mikla umfjöllun sem landið hefur fengið á erlendum vettvangi á undanförnum misserum virðist hafa skilað sér á jákvæðan hátt fyrir íslenska ferðaþjónustu.

Tölur Ferðamálastofu

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert