Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, vill lítið tjá sig um málsókn Más Guðmundssonar seðlabankastjóra á hendur bankanum vegna launakjara sinna. Steingrímur segir að réttur Más til að sækja rétt sinn verði ekki tekinn af honum. Þá vill hann lítið segja um áhrif málsóknarinnar.