Nærri 200 þúsund bílar fóru um Héðinsfjarðargöng á síðasta ári, mun fleiri en gert var ráð fyrir þegar gerð ganganna var undirbúin. Þessi fjöldi bendir til þess að um hálf milljón manns hafi farið um göngin, fram og til baka, á árinu.
Meðalumferð um Héðinsfjarðargöng á öllu árinu var 548 bílar á sólarhring, samkvæmt yfirliti sem birt er á vef Vegagerðarinnar. Er það talsvert meiri umferð en spáð var áður en framkvæmdir hófust. Fyrirfram var reiknað með að 350 bílar færu um göngin á dag og í mesta lagi 500.
Umferðin er því 57% meiri en búast hefði mátt við og tæplega 10% meiri en gert var ráð fyrir í allra bjartsýnustu spám Vegagerðarinnar.
Héðinsfjarðargöngin tengja saman Siglufjörð og Ólafsfjörð og þar með Siglufjörð við Eyjafjarðarsvæðið. Með þeim skapast möguleiki á hringakstri um Tröllaskaga. Göngin voru tekin í notkun í byrjun október 2010.
Meginhluti umferðarinnar er að sumrinu. Þannig er helmingur ársumferðarinnar á fjórum mánuðum, frá maí til ágúst.
Ath.
Fréttin er uppfærð og leiðrétt kl. 21.10 vegna leiðréttingar á tölum Vegagerðarinnar.