Salt sem hér er á markaði er ekki háð takmörkunum við innflutning, heldur eru vörurnar í frjálsu flæði á Evrópska efnahafssvæðinu og því undir eftirliti í framleiðslulandinu og markaðseftirliti þar sem varan er notuð. Þetta kemur fram á vef Matvælastofnunar.
Óviðunandi að iðnaðarsalt sé notað í matvælaiðnaði
„Iðnaðarsalt er því ekki ólögleg vara, sem er háð takmörkunum við flutning til landsins, heldur er vandamálið hvernig það hefur verið markaðssett fyrir matvælaiðnað. Það er ekki ásættanlegt að salt sem notað er í matvælaiðnaði sé ekki sérstaklega framleitt til þeirrar notkunar, því slíkt salt er háð strangara eftirliti. Ábyrgðin hvílir á þeim aðila sem flytur saltið til landsins og setur það á markað, hjá fyrirtækjum sem kaupa og nota vöruna án athugasemda og eftirlitsaðilum sem ekki hafa áttað sig á dreifingu hennar til matvælaiðnaðar,“ segir á vef Matvælastofnunar.
Eiga að vera með innra eftirlit
Matvælafyrirtæki eiga að starfrækja innra eftirlit og er það skilyrði fyrir starfsleyfisveitingu. Einn af grunnþáttum þess er móttökueftirlit, þ.e. skoðun hráefna, annarra innihaldsefna, umbúða og allra þátta sem geta haft áhrif á öryggi matvæla. Eigið eftirlit fyrirtækjanna felst í að kanna hollustuhætti, efnasamsetningu, hitastig í hráefnum og þá um leið merkingar á vörum sem notaðar eru í framleiðslu. Í innra eftirliti er jafnframt gerð krafa um skráningu eftirlitsniðurstaðna, sem eiga síðan að vera aðgengilegar fyrir opinbera eftirlitsaðila. Matvælastofnun hefur beint því til sinna eftirlitsmanna að kanna sérstaklega notkun á salti hjá þeim matvælafyrirtækjum sem eru undir eftirliti stofnunarinnar.
Unnið að samræmingu eftirlits
Matvælastofnun og heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga hafa samstarf um matvælaeftirlit og ráðgera samræmt eftirlitsverkefni á árinu 2012 til að kanna innra eftirlit fyrirtækja. Að gefnu tilefni hefur Matvælastofnun þegar rætt um að í þessu verkefni verði kannað hvernig matvælafyrirtæki sinna móttökueftirliti til að tryggja að öll aðföng séu ætluð til vinnslu og pökkunar á matvælum og standist kröfur um hollustuhætti. Stofnunin hefur einnig rætt við Samtök iðnaðarins og mun ræða við önnur hagsmunasamtök matvælafyrirtækja til að koma af stað átaki í matvælaiðnaði og hjá dreifingaraðilum, sem felist í að tryggja með eigin eftirliti að skilyrði matvælalöggjafar sé uppfyllt. Þannig taka fyrirtækin ábyrgð á öryggi eigin vöru eins og þeim ber samkvæmt matvælalögum. Niðurstöður átaksverkefnis opinberra eftirlits aðila verða síðan gerðar opinberar eins og tíðkast með samræmd eftirlitsverkefni þeirra, segir enn fremur á vef Mast.