Ölgerðin birtir á vefsíðu sinni mynd af iðnaðarsaltinu sem og vörulýsingarblöð fyrir annars vegar vottað salt og hins vegar óvottað salt. Á pakkningunni utan um iðnaðarsaltið, sem Ölgerðin flutti inn frá Akzo Nobel, stendur skýrum stöfum Industrial salt - Fine, og í vörulýsingu segir á ensku, norðurlandamálum og fleiri tungumálum að saltið sé aðeins til nota í iðnaðarframleiðslu.
Um leið og Ölgerðin harmar að fyrirtæki sem keyptu saltið séu dregin inn í umræðuna með nafnbirtingu opinberra aðila ítrekar hún á vefsíðunni að saltið sé fullkomlega lögleg vara og segir „ekkert athugavert við að flytja inn og selja slíkt salt.“ Sama innihald sé í vottuðu og óvottuðu salti frá Akso Nobel.
Þá segir í frétt á vef Ölgerðarinnar:
"Munurinn er eingöngu fólginn í því hvort eftirlit með vörunni sé vottað eftirlit, eins og krafa er gerð um fyrir hráefni í matvæli. Danski framleiðandinn fullyrðir að óvottaða saltið sé hættulaust til neyslu.
Ölgerðin tekur það skýrt fram að fyrirtækið og fulltrúar þess hafa aldrei reynt að blekkja einn eða neinn hvað þessa vöru varðar. Saltið hefur alltaf verið afhent í upprunalegum umbúðum og engin tilraun verið gerð til að fela útlit og eiginleika vörunnar. Kaupendum hefur alltaf staðið til boða nákvæmt vörulýsingarblað með saltinu og slík vörulýsing hefur alltaf fylgt með þegar stærri matvælafyrirtæki hafa óskað eftir formlegum tilboðum í magnkaup á salti.
Ölgerðin og þau fyrirtæki sem notuðu þetta salt í matvælaframleiðslu hafa viðurkennt andvaraleysi og mistök, vegna þess að saltið var ekki stimplað “food grade” og hafði ekki tilskilda vottun til nota í matvælaiðnaði. Ölgerðin biðst afsökunar á þeim mistökum.“