Neytendasamtökin ætlast til að eftirlitsaðilar veiti greinargóðar og rökstuddar upplýsingar um hvort ástæða sé til að ætla að iðnaðarsalt geti haft neikvæð heilsufarsleg áhrif á neytendur, segir í tilkynningu frá samtökunum. Sé raunin sú krefjast samtökin þess að innkölluð verði þau matvæli sem eru á markaði og innihalda iðnaðarsalt
Í tilkynningu frá samtökunum segir að lögð sé áhersla á að matvælafyrirtæki fari að reglum og að eftirlitsaðilar fylgist með að farið sé að reglum við framleiðslu matvæla.
Tilkynning Neytendasamtakanna:
„Fram hefur komið í fjölmiðlum að innlend matvælafyrirtæki hafa notað iðnaðarsalt, sem ekki er ætlað til matvælaframleiðslu, í framleiðslu sína. Neytendasamtökin gera alvarlega athugasemd við þetta. Samtökin leggja áherslu á að matvælafyrirtæki fari að fullu eftir þeim reglum sem gilda þannig að neytendur geti treyst þeim matvælum sem eru á boðstólum. Einnig gera samtökin þá kröfu að eftirlitsaðilar tryggi að framleiðsla matvæla sé með eðlilegum hætti og í fullu samræmi við gildandi reglur. Neytendasamtökin minna á að þetta er ekki í fyrsta sinn sem mál koma upp sem varða innlenda matvælaframleiðslu með neikvæðum hætti og er þar skemmst að minnast of mikils magns af kadmíum í áburði sem bændur nota á tún sín.
Neytendasamtökin ætlast til að eftirlitsaðilar veiti greinargóðar og rökstuddar upplýsingar um hvort ástæða sé til að ætla að iðnaðarsalt geti haft neikvæð heilsufarsleg áhrif á neytendur. Ef svo er, er það krafa samtakanna að innkalla eigi þau matvæli sem innihalda iðnaðarsalt og sem eru á markaði. Það er á ábyrgð eftirlitsaðila að taka afstöðu til þess hvort notkun á tilteknum efnum sé forsvaranleg og því nauðsynlegt að kalla eftir upplýsingum þar um. Jafnframt er það lágmarkskrafa að neytendur fái upplýsingar um það í hvaða vörur þetta salt hefur verið notað enda er eðlilegt að neytendur geti sniðgengið þær vörur ef framleiðendur hafa ekki frumkvæði að því sjálfir að innkalla þær.“