Sex fá 655 milljónir hver

Ofurtalan kom upp þegar dregið var í Víkingalottóinu í kvöld. Sex voru með allar tölurnar réttar, einn í Finnlandi og fimm Norðmenn, og fær hver þeirra tæplega 655 milljónir í sinn hlut.   

Ofurtalan er ein af tölunum sex sem dregnar eru út í Víkingalottóinu. Hún var 45 í drætti kvöldsins og deilist ofurtölupotturinn á milli þeirra sem fá fyrsta vinning. Í ofurtölupottinum voru samtals rúmlega 3,9 milljarðar kr.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert