Einungis hefur verið flogið á Bíldudal í dag hjá flugfélaginu Erni. Annað flug er í athugun. Ekkert hefur verið flogið innanlands hjá Flugfélagi Íslands það sem af er degi vegna veðurs.
Flogið var til Bíldudals klukkan 13 og á að athuga með aðra ferð hjá félaginu klukkan 14:30.
Flugfélag Íslands flýgur til Kúlúsúk á Grænlandi klukkan 13:45 en athuga á með innanlandsflug klukkan 14:15.