Tveir ráðherrar í ríkisstjórninni, þeir Ögmundur Jónasson og Össur Skarphéðinsson, sögðu nei við atkvæðagreiðslu um frávísunartillögu um að vísa frá þingsályktunartillögu Bjarna Benediktssonar um að ákæra á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, yrði felld niður. Jón Bjarnason og Árni Páll Árnason, sem létu af ráðherraembætti um áramót, sögðu einnig nei sem og forseti Alþingis, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir.
Þessir sögðu já
Arna Lára Jónsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Árni Þór Sigurðsson, Birgitta Jónsdóttir, Björn Valur Gíslason, Eygló Harðardóttir, Guðmundur Steingrímsson, Helgi Hjörvar, Jóhanna Sigurðardóttir, Jónína Rós Guðmundsdóttir, Katrín Jakobsdóttir, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Lúðvík Geirsson, Magnús M. Norðdahl, Magnús Orri Schram, Margrét Tryggvadóttir, Mörður Árnason, Oddný G. Harðardóttir, Ólína Þorvarðardóttir, Róbert Marshall, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Siv Friðleifsdóttir, Skúli Helgason, Steingrímur J. Sigfússon, Svandís Svavarsdóttir, Valgerður Bjarnadóttir, Þór Saari, Þráinn Bertelsson og Þuríður Backman.
Þessir sögðu nei
Atli Gíslason, Árni Páll Árnason, Árni Johnsen, Ásbjörn Óttarsson, Ásmundur Einar Daðason, Ásta R. Jóhannesdóttir, Birgir Ármannsson, Birkir Jón Jónsson, Bjarni Benediktsson, Einar K. Guðfinnsson, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson, Gunnar Bragi Sveinsson, Illugi Gunnarsson, Jón Bjarnason, Jón Gunnarsson, Kristján Þór Júlíusson, Kristján L. Möller, Lilja Mósesdóttir, Ólöf Nordal, Pétur H. Blöndal, Ragnheiður E. Árnadóttir, Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Sigurður Ingi Jóhannsson, Tryggvi Þór Herbertsson, Unnur Brá Konráðsdóttir, Vigdís Hauksdóttir, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, Ögmundur Jónasson og Össur Skarphéðinsson.
fjarvist:
Höskuldur Þórhallsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson.
fjarverandi:
Björgvin G. Sigurðsson.