Veita 3% staðgreiðsluafslátt af fasteignagjöldum

mbl.is

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur samþykkt að veita gjaldendum fasteignagjalda hjá Hafnarfjarðarbæ 3% staðgreiðsluafslátt af álögðum heildargjöldum ársins 2012, ef þau eru greidd 15. febrúar 2012 eða fyrr.

Hægt er að ganga frá staðgreiðslu gjalda með því að draga 3 % frá heildarálagningu gjaldanna og leggja inn á bankareikning sveitarfélagsins.

Ekki er vitað til þess að önnur sveitarfélög bjóði upp á staðgreiðsluafslátt af fasteignagjöldum. Upplýsingar um fasteignagjöld ársins eru á leið til gjaldenda.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert