Hátt í 10.000 undirskriftir hafa borist á einum sólarhring á vefsíðunni Áskoruntilforseta.is þar sem skorað er á Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, að gefa áfram kosta á sér í embætti forseta Íslands í komandi forsetakosningum.
Meðal þeirra sem skora á Ólaf Ragnar eru Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra, Baldur Óskarsson, fyrrverandi framhaldsskólakennari, Ragnar Arnalds, fyrrverandi ráðherra, og Ásgerður Flosadóttir, framkvæmdastjóri Fjölskylduhjálpar Íslands.