Undirskriftum fjölgar ört á vefsíðunni Áskorun til forseta en þar er skorað á Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, að gefa áfram kost á sér til embættis forseta Íslands í komandi forsetakosningum.
Þegar frétt þessi er skrifuð hafa tæplega 13.300 manns skorað á forsetann.
Meðal þeirra sem skora á Ólaf Ragnar eru Guðni Ágústsson, fyrrum ráðherra, Baldur Óskarsson, fyrrum framhaldsskólakennari, Ragnar Arnalds, fyrrum ráðherra, og Ásgerður Flosadóttir, framkvæmdastjóri Fjölskylduhjálpar Íslands.