Gæslan fékk neyðarkallið

Þyrluflugmenn Gæslunnar að störfum. Norskir starfsbræður þeirra fóru til leitar …
Þyrluflugmenn Gæslunnar að störfum. Norskir starfsbræður þeirra fóru til leitar að íslensku sjómönnunum. mbl.is/Árni Sæberg

Landhelgisgæslunni barst neyðarkall kl. 13:14 í dag frá íslenska togaranum undan ströndum Noregs, með fjóra menn um borð. Var togarinn þá innan norskrar lögsögu eða 150 sjómílur norðvestur af Álasundi. Á sama tíma hvarf skipið úr ferilvöktunarkerfum, segir í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.

Haft var samband við norsku björgunarmiðstöðina í Bodö sem einnig fékk neyðarskeytið. Voru samstundis sendar tvær norskar Sea King-björgunarþyrlur til leitar á svæðinu auk þess sem haft var samband við nærstaddan loðnubát sem þar var að veiðum. Einnig er Orion-eftirlitsflugvél frá Tromsö væntanleg á leitarsvæðið núna um sexleytið.

Kl. 17:15 barst Landhelgisgæslunni tilkynning um að einum manni hefði verið bjargað úr sjónum en þriggja er enn saknað. Staðsetning skipsins var innan norskrar leitar- og björgunarlögsögu og bera þeir því ábyrgð á leitar- og björgunaraðgerðum. Á svæðinu er sunnanstormur með 10-15 metra ölduhæð, að sögn Gæslunnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert