Lögreglan á Hvolsvelli biður ökumenn á Skeiðarársandi að fara varlega því skemmdir eru á vegi vegna vatnavaxta í Gígjukvísl.
Síðan um hádegið á föstudag, hefur vatnshæð og leiðni í Gígjukvísl á Skeiðarársandi hækkað óvenju mikið. Líklegast hefur hlaupið úr Grímsvötnum, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni.