Unga konan slapp ómeidd

Ráðstefnu- og tónlistarhúsið Harpa við Reykjavíkurhöfn.
Ráðstefnu- og tónlistarhúsið Harpa við Reykjavíkurhöfn. Júlíus Sigurjónsson

Ung kona sem ekið var á við Hörpu í miðborg Reykjavíkur á sjöunda tímanum í kvöld virðist hafa sloppið vel úr slysinu, að sögn læknis á slysadeild Landspítalans. Var talið líklegt að hún yrði útskrifuð af sjúkrahúsinu í kvöld.

Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu voru tildrög slyssins óljós en dimmt var orðið í miðborginni þegar óhappið varð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert