Húsleit vegna kynþáttaníðs

Skjáskot af vefsvæðinu sem inniheldur kynþáttaníð.
Skjáskot af vefsvæðinu sem inniheldur kynþáttaníð.

Lögregla höfuðborgarsvæðisins fór í húsleit síðastliðinn föstudag og lagði hald á tölvubúnað og gögn vegna rannsóknar á vefsvæði sem inniheldur kynþáttaníð. Friðrik Smári Björgvinsson, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglu höfuðborgarsvæðisins, segir málið á frumstigi.

Auk þess að leggja hald á tölvubúnaðinn var tekin skýrsla af einum manni, karlmanni sem grunaður er um tengsl við umrætt vefsvæði. Friðrik Smári sagði ekki ljóst hvort hann stæði á bak við vefsvæðið.

Vefsvæðið er ekki hýst hér á landi og því hægara sagt en gert að fá því lokað. Þó er unnið að því.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert