Lögreglumenn á Akranesi stöðvuðu ökumann númerslauss fjórhjóls í umferðinni. Ökumaður þess var með barn með sér á hjólinu og barnið hjálmlaust.
Barninu var komið til foreldra sem voru skammt frá en ökumaðurinn má gera ráð fyrir sekt fyrir athæfið, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.