Gjaldskrá Strætó hækkar í dag. Verð á tímabilskortum og afsláttarfarmiðum hækkar um 10% að jafnaði. Stök fargjöld haldast hins vegar óbreytt, eða 350 krónur.
Í fréttatilkynningu segir að hækkunin sé liður í stefnu stjórnar fyrirtækisins að auka hlut fargjaldatekna í rekstrarkostnaði Strætó bs. og að gjaldskrá haldi í við þróun almenns verðlags.