Iðuklettur, eitt helsta kennileiti Stóru-Laxár í Hreppum, féll er áin ruddi sig um helgina.
Kletturinn var um þriggja metra hár, hálfgert steintröll, og stóð austanvert í ánni við veiðistað er nefnist Iða og er skammt frá bænum Sólheimum.
Ófáir veiðimenn hafa gegnum árin sett í laxa við Iðuklett og hefur hann prýtt ófáar ljósmyndir, enda svipmikið kennileiti skammt fyrir neðan þar sem Laxárgljúfur opnast. Nú stendur lítill hnallur upp úr leysingarstraumnum, þar sem kletturinn stóð áður.