Arnar Sigurmundsson, formaður Landssambands lífeyrissjóða, vonast til þess að hægt verði að draga lærdóm af skýrslunni um starfsemi sjóðanna á árunum fyrir hrun sem lögð var fram fyrr í dag. Hann hafði ekki séð skýrsluna fyrr en í dag en hann sagði hana ekki hafa komið verulega á óvart.