Á vef Veðurstofunnar má sjá að allmargir litlir jarðskjálftar hafa orðið í Mýrdalsjökli og á Hengilssvæðinu á síðustu klukkutímunum.
Haft var samband við Veðurstofuna og þar fengust þær upplýsingar að um væri að ræða smáskjálfta og ekkert óeðlilegt væri að gerast og engin hætta á ferðum.