New York-búar fá nóg af skyri

Íslenskt skyr frá Mjólkursamsölunni.
Íslenskt skyr frá Mjólkursamsölunni.

Mjólkursamsalan stefnir að því að tvöfalda söluna á skyri í New York frá því sem nú er og að íslenskt skyr verði í boði í a.m.k. 1.000 verslunum þar í borg á næstu 12-20 mánuðum. Í dag er salan á skyri 120 tonn á ári eða um 720 þúsund dósir.

Þetta kemur fram á vef Landssambands kúabænda. Útflutningsdeild MS gekk frá nýjum dreifingarsamningi við bandarískt ferskvörudreifingarfyrirtæki í New York í janúar. Einkasölusamningur sem í gildi var við Whole Foods í Bandaríkjunum gekk úr gildi á síðasta ári og því var farið að leita að nýjum dreifingaraðilum í þeim tilgangi að auka sölu á skyri í Bandaríkjunum.

Fyrir valinu varð fyrirtæki sem heitir Gourmet Guru Inc í New York en það sérhæfir sig í dreifingu á náttúrulegum og lífrænum gæðamjólkurvörum og þjónustar um 1.500 verslanir á New York-svæðinu. Michae Bloomberg, borgarstjóri New York, verðlaunaði Gourmet Guru í fyrra sem fyrirtæki ársins 2011 í flokki smærri fyrirtækja sem staðsett eru í Bronx.

Á Stór-New-York svæðinu er gríðarlegt framboð af alls kyns mjólkurvörum og samkeppnin mjög hörð. Sett hefur verið upp ítarlegt sölu- og markaðsplan fyrir þetta svæði en þess má geta til fróðleiks að á svæðinu búa jafn margir og í allri Skandinavíu, eða yfir 20 milljónir manna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert