Stal uppstoppuðum lunda

Lögreglunni í Vestmannaeyjum var tilkynnt um stuld á uppstoppuðum lunda af veitingastað í bænum um helgina. Lögregla hafði upp á þjófinum sem staddur var á veitingastaðnum Lundanum með lundann. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu skemmdist lundinn í meðförum mannsins en hann kvaðst vera tilbúinn að bæta tjónið.

Að öðru leyti fór skemmtanahald í Vestmannaeyjum ágætlega fram, en að sögn lögreglu var þó nokkuð um að hjálpa þyrfti gestum skemmtistaða til síns heima. Frá þessu er greint á vefsvæði Eyjafrétta.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert