Réðust á stúlku í Ármúla

Stúlknahópur réðst á eina stúlku með nokkuð harkalegum hætti í Ármúlanum í Reykjavík um hádegið í dag. Vitað er hverjar voru að verki og sú sem varð fyrir árásinni hefur kært verknaðinn að sögn lögreglu.

Atvikið átti sér stað á bílastæði við Fjölbrautarskólann í Ármúla en stúlkurnar eru nemendur við skólann, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Lögreglan segir að nokkrar stúlkur hafi dregið eina stúlku afsíðis og ráðist á hana. Þær spörkuðu í hana, kýldu hana og brutu gleraugun hennar.

Sú sem varð fyrir árásinni hlaut ekki alvarlega áverka en er marin og lemstruð eftir atvikið.

Tilkynning um líkamsárásina barst lögreglunni klukkan 12.36.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert