Vafi um lögmæti fjárfestinga lífeyrissjóða

Fjárfestingar í víkjandi og lánshæfistengdum bréfum þóttu hæpnar.
Fjárfestingar í víkjandi og lánshæfistengdum bréfum þóttu hæpnar. mbl.is/hag

Nefndin, sem rannsakaði fjárfestingar og starfsemi lífeyrissjóða, telur að fjárfestingar í sérstökum tegundum skuldabréfa, m.a. víkjandi og lánshæfistengdum bréfum, hafi verið hæpnar.

Þær hafi jafnvel ekki verið í anda laga um lífeyrissjóði og ekki samræmst hlutverki sjóðanna.

Tekin eru dæmi af þátttöku í skuldabréfaútboði Glitnis í mars 2008 og milligöngu Landsbankans í útgáfu franska bankans Société Generale á baktryggðum skuldabréfum árin 2004 og 2005. Í umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag kemur fram, að nefndin telur leika vafa á að lagaleg skilyrði hafi verið fyrir hendi hjá lífeyrissjóðunum til þátttöku í útgáfu á bréfum franska bankans.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert