Ung vinstri græn leggja til að Ísland dragi sig út úr Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í ár og nýti þá fjármuni sem við verjum í að senda keppendur út til að efla tónlistarkennslu hér heima fyrir.
„Verið er að fremja stórfelld mannréttindabrot á íbúum Bakú í Aserbaídsjan þar sem byggja á höll undir lokakvöld keppninnar og hlýtur það að vekja upp alvarlegar spurningar um hversu verðmæt þátttaka í keppninni er fyrir Íslendinga. Íslendingar eiga ekki að leggja blessun sína yfir mannréttindabrot af neinu tagi,“ segir í ályktun stjórnar UVG frá því fyrr í kvöld.