Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna furðar sig á því hvernig óábyrgar lánveitingar, eins og þær sem tíðkuðust hjá lífeyrissjóðunum í aðdraganda bankahrunsins, geti viðgengist. Skora samtökin á Alþingi að gera ítarlega og óháða úttekt á lífeyrissjóðunum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu frá Hagsmunasamtökum heimilanna í kjölfar birtingar skýrslu um starfsemi lífeyrissjóðanna.
„Samtökin skora á Alþingi að láta gera ítarlega og óháða úttekt á lífeyrissjóðum, þar sem meðal annars verði rannsakað hvort stjórnir sjóðanna hafi með fjárfestingastefnu eða ákvörðunum sínum brotið gegn sjóðsfélögum og almenningi. Einnig að ráðist verði í heildarendurskoðun á íslenska lífeyrissjóðakerfinu en sterk rök og vísbendingar liggja að því að það sé ósjálfbært.
Stjórn HH telur lýðræðisvæðingu lífeyrissjóðanna vera eina af þeim grundvallarforsendum sem byggja verður á þegar rætt er um endurskoðun á kerfinu. Það eru sjálfsögð lýðréttindi að sjóðsfélagar kjósi stjórnir síns sjóðs með beinni kosningu. Hægt er að ganga strax í það mál á meðan rannsókn á lífeyrissjóðunum stendur yfir.
Stjórn HH hafnar þeim 170 milljarða króna reikningi sem lántakendum verðtryggðra lána hefur verið sendur af lífeyrissjóðunum í formi verðbóta frá ársbyrjun 2008 til að borga upp í tæplega 500 milljarða tap sjóðanna. Ekki er forsvaranlegt að velta þessum kostnaði yfir á lántakendur.
Stjórn HH skorar á alla stjórnarmenn, forstjóra og framkvæmdastjóra lífeyrissjóða sem bera ábyrgð á því hvernig fór að segja af sér,“ segir ennfremur í tilkynningu frá Hagsmunasamtökum heimilanna.