Olíufélögin til skoðunar

„Við höfum fylgst og munum fylgjast vel með því hvernig þessi markaður þróast, og ekkert ólíklegt að við tökum upp einhverja rannsókn á næstunni, án þess að það liggi fyrir núna.“

Þetta segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, sem átti í vikunni fund með FÍB um samkeppni olíufélaganna, verðlagningu þeirra og verðþróun.

Í umfjöllun um þessi mál í Morgunblaðinu í dag segir, að fundurinn hafi verið haldinn að beiðni FÍB sem í bréfi til eftirlitsins lýsti áhyggjum af þróuninni á markaðnum. Telur félagið teikn á lofti um að skortur sé á samkeppni og ástæða sé til að kanna hvort um samráð sé að ræða, þó að félagið segist ekki vera með vísbendingar eða gögn um slíkt.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert