Flest loðnuskipin fylltu sig við Grímsey

Hákon EA er á leið til land.
Hákon EA er á leið til land. mbl.is/Ómar

„Þetta er stór og falleg loðna og virðist vera mikið af henni þarna,“ segir Guðjón Jóhannsson, skipstjóri á loðnuskipinu Hákoni EA. Skipið fékk gott kast í gærmorgun við Grímsey og var í gærkvöldi á leið til Neskaupstaðar.

Tonnin 1300 fékk Hákon við Grímsey í fyrrinótt, megnið í síðasta kastinu. Í Morgunblaðinu í dag segir Guðjón, að flest skipin sem þarna voru hafi fyllt sig. Nóg er af loðnu á stóru svæði, að því er virðist frá Húnaflóa og suður fyrir Hvalbak.

„Veðrið hefur sett svakalegt strik í reikninginn. Það var ekkert hægt að vera við þetta við suðausturströndina og ég ákvað að keyra norður,“ segir Guðjón. Þar var gott veður í gærmorgun, í fyrsta skipti síðan Hákon hóf loðnuveiðar í vetur. Og mikið var af svartfugli. „Það hefði liðið yfir Svandísi Svavarsdóttur [umhverfisráðherra] ef hún hefði séð það.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert