Samstaða er í skýjunum

Lilja Mósesdóttir.
Lilja Mósesdóttir. mbl.is/Ómar

Við erum auðvitað al­veg í skýj­un­um yfir þessu og erum hrærð yfir að fá svona mik­inn stuðning,“ seg­ir Lilja Móses­dótt­ir, þingmaður og formaður Sam­stöðu, en ný skoðana­könn­un Frétta­blaðsins og Stöðvar tvö sýn­ir 21% fylgi við fram­boðið. „Við bjugg­umst alls ekki við þessu svona í upp­hafi.“

Um 53%  þeirra sem spurðir voru í könn­un­inni tóku af­stöðu.

„Þetta gef­ur okk­ur auk­inn kraft og vissu fyr­ir því að við séum að gera rétt. En auðvitað er ekki hægt að treysta á að það sem kem­ur fram í skoðana­könn­un­um komi upp úr kjör­köss­un­um.“

Lilja seg­ir Sam­stöðufólk hafa bú­ist í mesta lagi við að fá um 15% aðspurðra í könn­un­inni.   „Við átt­um ekki von á meiru, því við höf­um ekk­ert kom­ist út á land til að kynna okk­ur. Við höf­um bara verið í sam­bandi við fólk úr kjör­dæmun­um. Við ætluðum að fara í þess­ari viku, en kom­umst síðan ekki. Veðrið kom í veg fyr­ir það,“ seg­ir Lilja og seg­ir fe­brú­ar að þessu leyt­inu til óhag­stæðan til að stofna nýj­an flokk.

Storm­sveip­ur í ís­lenskri póli­tík

„En við ætl­um að reyna okk­ar besta við að kom­ast á stóru staðina,“ seg­ir Lilja og bæt­ir við að gott sé að hafa veður­fræðing í for­ystu flokks­ins, en vara­formaður hans er Sig­urður Þ. Ragn­ars­son jarð- og veður­fræðing­ur. „Hann spá­ir mikið í veðrið og lagði til að blaðamanna­fund­ur­inn yrði á storma­söm­um degi. Enda kom­um við eins og storm­sveip­ur inn í ís­lenska póli­tík.“

Hún seg­ir erfitt að segja til um hvaðan fylgið komi. 

„En mér sýn­ist Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn vera að missa heil­mikið fylgi og það gæti komið þaðan. Svo hef ég fundið fyr­ir því að fólk sem studdi stjórn­ar­flokk­ana hef­ur beðið átekta.“

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert