Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir í yfirlýsingu að hann hafi á engu stigi rannsóknar á svonefndu Vafningsmáli legið undir grun um lögbrot og ásakanir um að hann hafi falsað skjöl séu fráleitar.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu, sem Bjarni hefur sent frá sér vegna frétta, sem birst hafa í DV um að umboð, sem Bjarni fékk til að skrifa undir veðsamninga fyrir hönd eignarhaldsfélagsins Vafnings, hafi verið dagsett aftur í tímann.
Bjarni segir, að dagsetning skjalanna hafi verið forskrifuð á þau skjöl sem hann skrifaði á og endurspegli einfaldlega vilja þeirra sem að þeim standi um að samkomulag þeirra skuli gilda frá þeim degi. Þetta sé alvanalegt, ekki síst þegar safna þurfi undirskriftum frá fleiri en einum aðila á skjal. Í því sé ekkert ólöglegt og ef grunur léki á um skjalafals hefði verið ákært fyrir slíkt brot. Því sé ekki að skipta.
Skjölin eru dagsett 8. febrúar 2008 en Bjarni segir í yfirlýsingunni, að samkvæmt gögnum sem hann hafi aflað sér megi ætla að hann hafi skrifað undir 11. eða 12. febrúar.
Yfirlýsing Bjarna er eftirfarandi:
Í tilefni af fréttum um dagsetningar skjala í svonefndu Vafningsmáli vill undirritaður taka eftirfarandi fram.
Í vitnaskýrslu, sem tekin var tæpum fjórum árum eftir undirritun, greindi ég frá því að ég hefði að öllum líkindum skrifað undir skjölin, fyrir hönd þriðju aðila, á bilinu 8.-12. febrúar 2008. Samkvæmt gögnum sem ég hef í millitíðinni aflað mér má ætla að ég hafi skrifað undir 11. eða 12. febrúar. Þess má geta að ég hafði enga vitneskju um lánveitingar til Milestone í tengslum við þetta mál fyrr en það varð opinbert í desember síðastliðnum.
Allar ásakanir um að ég hafi falsað skjöl eru fráleitar.
Dagsetning skjalanna var forskrifuð á þau skjöl sem ég skrifaði á og endurspeglar einfaldlega vilja þeirra sem að þeim standa um að samkomulag þeirra skuli gilda frá þeim degi. Þetta er alvanalegt, ekki síst þegar safna þarf undirskriftum frá fleiri en einum aðila á skjal. Í því er ekkert ólöglegt á nokkurn hátt. Ef grunur léki á um skjalafals hefði verið ákært fyrir slíkt brot, en því er ekki að skipta.
Lánveiting þessi fór í opinbera rannsókn. Þeirri rannsókn er nú lokið. Hefur tveimur starfsmönnum Glitnis verið birt ákæra fyrir að hafa farið út fyrir umboð sitt. Enn hefur dómur ekki gengið í því máli.
Undirritaður hefur á engu stigi málsins legið undir grun um lögbrot. Enginn hefur verið ákærður fyrir skjalafals í tengslum við málið. Eins og ég hef margítrekað sagt hafði ég enga aðra aðkomu að málinu en þá að aðstoða hluthafa við að verða við kröfum bankans um tryggingar.
Hér er enn og aftur um innihaldslausar pólitískar árásir í minn garð að ræða. Augljóst er að þær eru settar fram nú fyrst og fremst í tilefni af ákveðnu þingmáli sem ég hef mælt fyrir á Alþingi.
Bjarni Benediktsson
13. febrúar 2012